Manchester City vill meira en eitt stig á Old Trafford Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. október 2011 06:00 Sergio Agüero og Roberto Mancini fara yfir málin. Nordic Photos / Getty Images
Það er sannkallaður stórleikur á dagskránni í enska boltanum á morgun þegar Manchester-liðin, United og City, mætast á Old Trafford í uppgjöri efstu liða úrvalsdeildarinnar. City komst í toppsæti deildarinnar um síðustu helgi á kostnað nágranna sinna sem ætla sér toppsætið á nýjan leik. Þessi tvö lið hafa verið áberandi sterkust í upphafi leiktíðar og baráttan um Manchester-borg er nú orðin miklu meira en nágrannaslagur. Nú er þetta orðinn lykilleikur í baráttunni um meistaratitilinn. Menn hafa beðið eftir því að City færi að veita United keppni um titilinn eftir að félagið fór að eyða ótrúlegum upphæðum í nýja leikmenn. Hinn ítalski stjóri Man. City, Roberto Mancini, segist bera mikla virðingu fyrir kollega sínum, Sir Alex Ferguson, sem hann lítur á sem kennara. „Ég ber gríðarlega virðingu fyrir honum og því sem hann hefur gert á síðustu 25 árum. Hann er kennari fyrir okkur hina og ég reyni að læra af honum eins og aðrir,“ sagði Mancini. „Þó svo að hann sé orðinn 69 ára er hann enn fullur af orku og vill ekkert annað en vinna. Hann er okkur ungu stjórunum mikil fyrirmynd. Vonandi get ég unnið af slíkum krafti á hans aldri en það verður ekki auðvelt.“ Síðan Mancini tók við City árið 2009 hefur honum ekki enn tekist að vinna United í deildarleik. „Við höfum bætt okkur mjög mikið á einu ári og við verðum að halda þeirri vinnu áfram. Vissulega væri gott að fara frá Old Trafford með eitt stig en við viljum meira, rétt eins og United.“ Sir Alex segir að sínir menn séu klárir í slaginn. „Þetta gæti orðið rosalegur leikur og ég get ekki beðið. Við elskum svona áskoranir. Þessir leikur sker ekki úr um tímabilið en hann gæti haft áhrif á lokaniðurstöðuna og framhaldið hjá liðunum,“ sagði Ferguson.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira