Erlent

Gröf með báti og vopnum

Teikning af kumlinu. nordicphotos/AFP
Teikning af kumlinu. nordicphotos/AFP
Heillegt bátskuml hefur fundist í Skotlandi, á afskekktum skaga sem nefnist Ardnamurchan. Talið er að víkingahöfðingi hafi verið grafinn þar ásamt báti sínum, exi, sverði og spjóti. Kumlið er líklega meira en þúsund ára gamalt, en þetta er fyrsta heillega víkingakumlið sem finnst í Bretlandi og þykir þessi fornleifafundur því afar merkilegur. Reynt er að afla vitneskju um samfélagsþróun á þessum slóðum frá víkingatímanum.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×