Kínverjar hóta Bandaríkjunum viðskiptastríði 6. október 2011 09:30 Ánægðir öldungadeildarþingmenn Repúblikaninn Jeff Sessions og demókratinn Chuck Schumer eru sammála.fréttablaðið/AP
Kínversk stjórnvöld hafa brugðist ókvæða við lagafrumvarpi sem öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að taka á dagskrá. Frumvarpið felur í sér heimild til stjórnvalda til að refsa ríkjum sem vísvitandi halda gengi gjaldmiðils síns niðri. Frumvarpinu er augljóslega beint fyrst og fremst gegn kínverskum stjórnvöldum, sem árum saman hafa haldið gengi júansins mjög lágu – sem kemur sér vel fyrir kínverskan útflutning og kínverska ríkissjóðinn en illa fyrir Bandaríkin og önnur lönd, sem fá litlar tekjur af viðskiptum við Kína. Kínversk stjórnvöld telja hagvexti sínum ógnað verði frumvarpið samþykkt, og hafa komið harðorðum mótmælum á framfæri. „Þetta gæti leitt af sér viðskiptastríð, sem við viljum ekki,“ segir í yfirlýsingu frá kínverska seðlabankanum. Nokkuð öruggt þykir að öldungadeild Bandaríkjanna samþykki frumvarpið undir lok vikunnar, en óvissa er um afdrif þess í fulltrúadeildinni. Á síðasta ári samþykkti fulltrúadeildin, þegar demókratar höfðu þar meirihluta, sams konar frumvarp, en nú hafa repúblikanar, sem eru komnir með meirihluta í deildinni, lýst yfir efasemdum. Ekki síst vegna þess að þeir telja afleiðingarnar geta orðið óútreiknanlegar.- gb
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira