Pútín vill stofna Evrasíubandalag 5. október 2011 11:00 Forsætisráðherrann á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku. Fréttablaðið/AP
Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, lagði til í blaðagrein í gær að stofnað yrði nýtt Evrasíusamband, bandalag fyrrverandi Sovétlýðvelda sem gæti keppt við Evrópusambandið, Bandaríkin og Asíuríki á alþjóðavettvangi. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Pútín verði á ný forseti Rússlands á næsta ári, nú þegar Dmitrí Medvedev hefur lýst því yfir að hann muni ekki bjóða sig fram gegn honum. Blaðagreinin, sem birt var í dagblaðinu Izvestia í gær, er fyrsta meiriháttar yfirlýsing Pútíns frá því ljóst varð að hann myndi sækjast eftir forsetaembættinu. Óhætt er að gera ráð fyrir að hann muni leggja áherslu á að þessi hugmynd um bandalag Evrasíuríkja verði að veruleika. Pútín hefur sagt hrun Sovétríkjanna árið 1991 hafa verið mestu heimspólitísku ófarir 20. aldarinnar en neitar því að vilja endurvekja þau. „Það er ekki verið að tala um að endurreisa Sovétríkin í neinum skilningi,“ sagði hann. „Það væri einfeldningsháttur að reyna að endurvekja eða líkja eftir einhverju sem tilheyrir fortíðinni, en náin samlögun byggð á nýjum gildum og efnahagslegum og stjórnmálalegum grunni er krafa samtímans.“ Rússland hefur nú þegar gengið í viðskiptabandalag með Hvíta-Rússlandi og Kasakstan. Tollmúrar milli þessara þriggja ríkja hafa verið felldir niður og um áramótin taka gildi sameiginlegar markaðsreglur í þeim öllum. Pútín segir að Kirgisistan og Tadsjikistan muni brátt ganga til liðs við þetta bandalag. „Við ætlum ekki að láta þar staðar numið heldur setja fram metnaðarfull áform um nýtt samstarf á æðra plani í Evrasíusambandinu,“ segir Pútín í grein sinni. „Ásamt öðrum lykilgerendum og svæðabandalögum, eins og Evrópusambandinu, Bandaríkjunum, Kína og Efnahagsbandalagi Asíu- og Kyrrahafsríkja á það að tryggja stöðugleika í alþjóðaþróun.“ Rússar hafa lengi lagt mikla áherslu á nánari samvinnu milli fyrrverandi Sovétlýðvelda en fyrri tilraunir í þá veru hafa strandað á hagsmunaárekstrum þeirra. Sum þessara fyrrverandi Sovétlýðvelda tortryggja rússnesk stjórnvöld og hafa því frekar horft til vesturs og leitað eftir samstarfi við Evrópusambandið og jafnvel Atlantshafsbandalagið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira