Kona verður forsætisráðherra 4. júlí 2011 02:15 Yingluck Shinawatra fagnar sigri Puea Thai flokksins í þingkosningum í Taílandi. nordicphotos/afp
Taíland, ap Yingluck Shinawatra verður forsætisráðherra Taílands, fyrst kvenna, en flokkur hennar, Puea Thai, vann stórsigur í þingkosningunum í gær. Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra landsins, viðurkenndi í gær ósigur Lýðræðisflokksins og sagðist reiðubúinn að gefa Shinawatra tækifæri til að mynda ríkisstjórn. Hann sagðist vilja sjá samheldni og sættir og að Lýðræðisflokkurinn væri tilbúinn til stjórnarandstöðu. Shinawatra fór sjálf varlega í yfirlýsingar en sagðist myndu leggja sig fram um að vinna í þágu fólksins og að mikið verk væri fyrir höndum. Þá sagði hún viðræður hafnar við einn af smærri flokkunum um samstarf og að rætt yrði við fleiri flokka. Yingluck Shinawatra er nýgræðingur í stjórnmálum og eru vinsældir hennar raktar til bróður hennar, Thaksins Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra. Ríkisstjórn hans var steypt af stóli með hervaldi árið 2006. Hann hefur verið í útlegð síðan og sagðist í gær ekki væntanlegur heim strax, hann vildi ekki trufla sáttaferlið sem fram undan væri. - rat
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Innlent Fleiri fréttir Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila