Leikmannasamtökin hafa áhyggjur af kærunni á Babel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2011 15:00 Ryan Babel í leiknum umrædda á móti Manchester United. Mynd/AFP
Gordon Taylor, formaður leikmannasamtakanna í Englandi, segir að leikmenn verði að fá að hafa málfrelsi og möguleika á því að geta tjáð sig á samskiptasíðum. Taylor tjáði sig um kæru enska sambandsins á Liverpool-manninum Ryan Babel sem birti mynd af dómaranum Howard Webb á twitter-síðu sinni eftir bikartapið á sunnudaginn. „Leikmenn eru stundum gagnrýndir fyrir það að gefa ekkert af sér í viðtölum og nú er Ryan Babel kominn í vandræði fyrir að hafa skoðun," sagði Gordon Taylor í viðtali við Reuters. „Leikmennirnir eru í raun á milli steins og sleggju og þeir geta ekki unnið þessa baráttu. Sambandið er að reyna að verja dómara sína en góðlátleg stríðni og ólíkar skoðanir eru bara hluti af leiknum," sagði Taylor. Babel var mjög ósáttur við dómgæslu Howard Webb í bikarleiknum á móti Manchester United í gær en Webb dæmdi víti á Liverpool á fyrstu mínutu leiksins og rak síðan fyrirliðanna Steven Gerrard af velli eftir hálftíma leik. Babel setti myndina inn skömmu eftir leikinn. „Og þeir segja að hann sé einn besta dómarann. Það er brandari," skrifaði Babel undir myndina. Babel fjarlægði síðan færsluna og bað Webb afsökunar. „Það að hann skildi hafa beðist afsökunar strax og sagt að hann hafi bara hugsað þetta sem góðlátlega stríðni er næg ástæða að mínu mati til að fá bara viðvörun. Sambandið er hinsvegar eflaust að reyna að sjá til þess að svona mál komi ekki aftur upp," sagði Taylor.
Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Golf Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fleiri fréttir Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Sjá meira