Hu Jia sleppt úr fangelsi í Kína 26. júní 2011 10:09 Hu Jia.
Kínverska andófsmanninum Hu Jia hefur verið sleppt úr fangelsi í Kína og dvelur nú með fjölskyldu sinni, en eiginkona hans greindi frá þessu á Twitter. Hu var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir niðurrifsstarfsemi en hann átti að ljúka afplánun í dag. Lögreglan í Peking er með mikinn viðbúnað fyrir utan heimili hans og virðist hann vera í einhvers konar stofufangelsi, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Jia er þrjátíu og sjö ára gamall og hefur barist fyrir mannréttindamálum í Kína um árabil. Á meðal helstu baráttumála hafa verið umhverfismál, trúfrelsi og réttindi þeirra sem smitaðir eru af HIV veirunni. Mannréttindabrot eru enn landlæg í Kína, en í síðustu viku var listamanninum Ai Weiwei sleppt, en gæsluvarðhald sem Weiwei hafði þurft að sæta, að því er virðist án þess að hafa framið nokkurt afbrot, eða vera grunaður um slíkt, hafði vakið hörð viðbrögð á heimsvísu. Kínversk yfirvöld segja hins vegar að Weiwei hafi viðurkennt skattundanskot og frelsisskerðing hans tengist rannsókn á þeim afbrotum. Báðum mönnunum, Hu og Weiwei, virðist hafa verið meinað að ræða við fjölmiðla en mannréttindasamtök víða um heim hafa tekið upp málstað beggja mannanna. Þá fékk kínverski andófsmaðurinn Liu Xiaobo friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári. Liu situr í fangelsi fyrir að hvetja til pólitískra umbóta og aukins tjáningar- og trúfrelsis.
Mest lesið Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Fleiri fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Sjá meira