Bardagar við höfuðstöðvar Gaddafis 22. ágúst 2011 07:56 Frá Græna torginu í Trípólí mynd/afp
Mikil fagnaðarlæti brutust út í Trípoli, höfuðborg Líbíu, í gærkvöldi þegar að uppreisnarmenn náðu miðhlutaborgarinnar á sitt vald. Fjörutíu og tveggja ára einræðisstjórn Gaddafis virðist vera að ljúka. Uppreisnarmenn skjóta nú af byssum sínum upp í loftið og dansa af gleði eftir að þeir náðu Græna torginu í miðborg Trípolí á sitt vald seint í gærkvöldi. Veggspjöld með myndum af Múammar Gaddafi, fyrrum einræðisherra, hafa verið fjarlægð og fána uppreisnarmannanna hefur nú verið komið fyrir víðsvegar um torgið. Græna torgið er eins konar táknmynd Gaddafis en þar hefur hann haldið flestar sínar ræður og stuðningsmenn hans hafa safnast saman á torginu til að sýna honum stuðning. Sveitir Gaddafis virðast hafa gefist upp þegar að uppreisnarmennirnir réðust til atlögu í gærkvöldi og veittu litla sem enga mótspyrnu. En þeir segja sveitir einræðisherrans séu enn með 15-20 prósent borgarinnar á sínu valdi. Saksóknari hjá alþjóðaglæpadómstólnum í Haag hefur staðfest að Seif al-islam, sonur Gaddafis, sé í haldi uppreisnarmanna. Hann var talinn eiga taka við völdum í landinu af föður sínum. Þá er yfirmaður líbísku leyniþjónustunnar einnig í haldi. Ekki er vitað hvar sjálfur Gaddafi heldur sig, en í samtali við ríkisútvarp Líbíu í gærkvöldi, sagði hann að borgarbúar yrðu að standa saman og verjast uppreisnarmönnunum af fullum krafti. Hreinsa þyrfti rotturnar, eins og hann kallaði uppreisnarmennina, af götum borgarinnar - jafnvel þó það myndi kosta mikið blóðbað. Fréttastofan AFP sagði frá því í morgun að harðir bardagar væru nálægt höfuðstöðvum Gaddafis. Ekki er þó ljóst hvort að einræðisherran er í húsinu. Margir velta því fyrir sér hvar hann sé, sumir fjölmiðlar segja hann vera í eyðimörkinni á meðan aðrir segja að hann sé flúinn í annað land.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Vígamenn gera uppþot í Malí Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt Sjá meira