Vieira: City á Tevez mikið að þakka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. nóvember 2011 18:15 Nordic Photos / Getty Images
Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Manchester City og nú einn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu, segir að félagið eigi þrátt fyrir allt Carlos Tevez mikið að þakka. Það hefur gengið á ýmsu hjá Tevez síðustu vikurnar eftir að hann neitaði að koma inn á sem varamaður í leik liðsins gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu. Á dögunum fór hann í leyfisleysi til Argentínu og verður að teljast ólíklegt að hann eigi eftir að spila fyrir félagið á ný. „Ég held að það sé mjög erfitt að tjá sig að miklu leyti um mál Tevez því rannsóknin er enn í fullum gangi og ég tel það ekki við hæfi að blanda sér í málið,“ sagði Vieira í samtali við enska fjölmiðla. „En ég tel að félagið eigi Carlos mikið að þakka. Liðið væri annars ekki á þeim stað þar sem það er í dag, hefði hann ekki lagt sitt af mörkum. Carlos skoraði mikið á síðasta tímabili og hefur reynst liðinu afar vel.“ City er nú á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forystu. Vieira segir að leikmenn eigi hrós skilið. „Þeir hafa verið að leggja á sig mikla vinnu, allir sem einn. Sóknarmennirnir hafa verið öflugir, þeir Edin Dzeko, Sergio Agüero og Mario Balotelli, og hafa skorað mikið af mörkum.“
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira