The Mirror: Lögreglan vill kæra Terry Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. nóvember 2011 12:45 John Terry í umræddum leik gegn QPR. Nordic Photos / Getty Images
Enska götublaðið The Mirror staðhæfir í dag að lögreglan í Lundúnum ætli að krefjast þess að John Terry verði kærður af saksóknara bresku krúnunnar. Terry er fyrirliði Chelsea og er gefið að sök að hafa beitt Anton Ferdinand, leikmann QPR, kynþáttaníði í leik liðanna í síðasta mánuði. Terry er einnig fyrirliði enska landsliðsins og hefur verið gríðarlega mikið fjallað um málið í enskum fjölmiðlum síðan það kom upp. Lögreglan hefur rannsakað ásakanirnar, sem og enska knattspyrnusambandið, og til að mynda yfirheyrt sex leikmenn Chelsea vegna málsins. Terry hafði mjög ljót orð um Ferdinand eins og mátti sjá í sjónvarpsupptökum af atvikinu. Terry segir hins vegar að orðin hafi verið tekin úr samhengi. Ferdinand heyrði ekki hvað Terry sagði í leiknum sjálfum en fékk að vita eftir leik hvað Terry lét frá sér. Lögreglurannsóknin er sögð vera ítarleg og að tíu rannsakendur hafi komið að málinu með einum eða öðrum hætti. Samkvæmt The Mirror hallast lögreglan nú að því að leggja það til við saksóknara að kæra Terry. Terry hefur sjálfur ávallt staðfastlega neitað sök og hefur heitið því að hreinsa nafn sitt af ásökununum.
Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Fleiri fréttir Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Sjá meira