Man. City fór illa með nágranna sína á Old Trafford - með fimm stiga forskot Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2011 11:45 Mario Balotelli. Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester City er komið með fimm stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 6-1 stórsigur á nágrönnum sínum í Manchester United. Chelsea getur náð öðru sætinu af United og minnkað forskot City í þrjú stig seinna í dag. Mario Balotelli var maður dagsins í Manchester-slagnum á Old Trafford í dag en ítalski vandræðagemlingurinn skoraði tvö fyrstu mörkin og fiskaði að auki Jonny Evans útaf með rautt spjald í upphafi seinni hálfleiks. Varamaður hans Edin Dzeko skoraði síðan tvö mörk í lok leiksins. Manchester United var búið ekki búið að tapa heimaleik í 37 leikjum í öllum keppnum þar af var liðið búið að vinna 19 heimaleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni. Manchester City var líka aðeins að vinna sinn annan leik á Old Trafford frá árinu 1974. Mario Balotelli kom Manchester City í 1-0 á 22. mínútu eftir laglegan sprett David Silva og sendingu James Milner út í teiginn. Þannig var staðan í hálfleik. Jonny Evans, sem spilaði leikinn frekar en Phil Jones og Nemanja Vidic, fékk síðan rautt spjald á 49. mínútu fyrir að toga niður Balotelli sem var að sleppa í gegn. UNited átti smá sprett eftir að þeir misstu Evans útaf en Balotelli kom City síðan í 2-0 með skoti af stuttu færi á 60. mínútu eftir annað upphlaup hjá David Silva og sendingu frá Milner. Sergio Agüero skoraði þriðja markið níu mínútum síðar eftir frábæra sókn þar sem Balotelli og Milner spiluðu Micah Richards í gegn og bakvörðurinn sendi boltann fyrir á Agüero. Darren Fletcher minnkaði muninn á 80. mínútu með fallegu skoti fyrir utan teig eftir sendingu frá Javier Hernández en City átti lokaorðið og skoraði þrjú mörk í lokin. Fyrst skoraði varamaðurinn Edin Dzeko á 89. mínútu af marklínunni eftir sendingu frá Joleon Lescott, á fyrstu mínútu uppbótartímans skoraði David Silva fimmta markið eftir stungusendingu frá Edin Dzeko og Dzeko skoraði síðan sjötta markið sjálfur en hann gat auðveldað skorað þrennu í lokin.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Körfubolti Fleiri fréttir Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Sjá meira