Erlent

Kaffidrykkja dregur úr áhættu á húðkrabbameini

Kaffidrykkja dregur úr hættu á húðkrabbameini.
Kaffidrykkja dregur úr hættu á húðkrabbameini.
Rannsóknir sýna að kaffidrykkja dregur úr hættu á grunnfrumukrabbameini en það er algengasta krabbamein veraldar.

Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að konur sem drekka þrjá kaffibolla á dag eru 20% ólíklegri til að þróa krabbameinið.

Vísindamenn vita ekki hver tengslin milli kaffineyslu og grunnfrumukrabbameins eru og enn undarlegri er sú staðreynd að kaffi virðist ekki hafa áhrif á aðrar tegundir krabbameins.

Grunnfrumukrabbamein er tegund húðkrabbameins. Sárin eru nokkrir millimetrar á stærð og eru ekki talin vera lífshættuleg. Ef krabbameinið dreifist í undirliggjandi vefi myndast þó hætta, grunnfrumukrabbamein dreifir sér þó sjaldnast með meinvörpum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×