Erlent

Norræn sendiráð gefa mat í Washington

Sendiráð Norðurlandanna í Washington munu gefa 45 þúsund börnum í 125 ríkisskólum í höfuðborg Bandaríkjanna holla og næringarríka máltíð á Norræna matardeginum sem haldinn verður í dag 26. október.

Í tilkynningu á vefsíðu stjórnarráðsins segir að sendiráð Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar standa fyrir matardeginum í samvinnu við skólayfirvöld í Washington.

Tilgangurinn er að kynna norrænar matarvenjur og menningu Norðurlanda fyrir börnunum.

Á boðstólum verða hollir og einfaldir hversdagsréttir - kjötbollur, fiskur, skyr, hrökkbrauð og smurbrauð. Fimm norrænir matreiðslunemar hafa liðsinnt starfsfólki skólaeldhúsanna við þetta verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×