Chavez kominn aftur til Kúbu 17. júlí 2011 12:16 Hugo Chavez gekkst undir meðferð við krabbameini. Mynd/ AFP.
Hugo Chavez, forseti Venesúela, er aftur kominn til Kúbu til að gangast undir frekari meðferð við krabbameini. Chavez ræðir opinskátt um veikindi sín í fjölmiðlum og tók meðal annars lyfin sín í beinni sjónvarpsútsendingu. Læknar sem sinnt höfðu Chavez fundu fleiri illkynja frumur eftir að hann gekkst undir skurðaðgerð á Kúbu í júní til að fjarlægja æxli vegna ristilkrabbameins, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Forsetinn hefur nú snúið aftur til Kúbu í frekari meðferð. Krabbameinsmeðferðin sem forsetinn undirgengst hefst í dag, en Chavez tilkynnti að hann yrði frá í nokkra daga vegna hennar. Forsetinn hefur framselt hluta af forsetavaldi til ráðherra í ríkisstjórn Venesúela í fjarveru sinni en hefur ekki orðið við kröfum stjórnarandstöðunnar í Venesúaela um að afhenda fullt vald forsetaembættisins tímabundið meðan hann er frá vegna veikinda. Chavez, sem af mörgum er talinn afar litríkur, hefur rætt mjög opinskátt um veikindi sín í fjölmiðlum heimalandsins og á ríkisstjórnarfundi á fimmtudag tók hann krabbameinslyf í beinni sjónvarpsútsendingu. Í gær sagði hann í viðtali áður en hann flaug frá Caracas til Kúbu að þetta væri ekki tíminn til að deyja, heldur tíminn til að lifa. Forsetinn sagðist ekki vera að kveðja og sagðist mundu snúa heilbrigðari frá Kúbu að lokinni meðferð.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira