Brynjar Björn og félagar slógu Everton úr leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. mars 2011 21:27 Jack Mills, til hægri, fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Reading komst í kvöld áfram í fjórðungsúrslit ensku bikarkeppninnar með 1-0 sigri á úrvalsdeildarliði Everton á útivelli. Jack Mills skoraði eina mark leiksins á 26. mínútu en það kom í kjölfar hornspyrnu. Mills reyndi skalla að marki en fékk svo boltann aftur og náði að skjóta honum í gegnum þvögina í teig Everton og í netið. Brynjar Björn Gunnarsson var í byrjunarliði Reading og lék allan leikinn sem vinstri bakvörður. Þetta var aðeins í sjöunda skiptið í vetur sem Brynjar Björn er í byrjunarliði Reading á tímabilinu og í annað skiptið síðan í september. Everton byrjaði ágætlega í leiknum en lét mark gestanna algerlega slá sig út af laginu. Reading var nálægt því að komast í 2-0 í upphafi síðari hálfleiks þegar að Ian Harte átti hörkuskot að marki Everton úr aukaspyrnu en hárfínt framhjá. Everton sótti stíft að marki Reading á lokakafla leiksins. Louis Saha átti skot að marki en það var varið á marklínu af liðsfélaga hans, Jermaine Beckford. Leon Osman átti svo skot að marki af stuttu færi en Alex McCarthy, markvörður Reading, var á hárréttum stað og varð fyrir skotinu. Þar við sat og mun nú Reading mæta annað hvort Manchester City eða Aston Villa í fjórðungsúrslitum en þau munu eigast við annað kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ Körfubolti „Skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi“ Sport „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Körfubolti PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Fótbolti Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Enski boltinn Fleiri fréttir Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Sjá meira