Gallabuxnaauglýsing sem sýnir óeirðir tekin úr spilun í Bretlandi 12. ágúst 2011 21:15
Sjónvarpsauglýsing gallabuxnaframleiðandans Levi's hefur verið tekin úr spilun í Bretlandi. Ástæðan er sú að í auglýsingunni má sjá myndbrot sem þykja minna um of á óeirðirnar í Bretlandi, sem hafa leitt til handtöku um eitt þúsund og sex hundruð ungmenna á örfáum dögum. Auglýsingin er hluti nýrrar herferðar Levi's sem talsmaður fyrirtækisins segir snúast um bjartsýni, jákvæðar gjörðir og anda frumkvöðulsins. Undir myndbrotunum heyrist ljóðið „Hið hlæjandi hjarta" eftir Charles Bukowski, en upphafsorðin mætti þýða á þennan veg: „Líf þitt er þitt líf / leyfðu engum að berja það niður í saggakenda undirgefni." Í auglýsingunni má sjá ungmenni í þröngum gallabuxum taka þátt í kröfugöngum, nota reyksprengjur og ögra lögreglumönnum. Þá eru önnur myndbrot meira í anda hinna hefðbundnu gallabuxnaauglýsinga: Ástfangin ungmenni í faðmlögum, gallabuxnaklæddir gestir á næturklúbbum og náttúrubörn í Levi's gallabuxum, sem taka hafgolunni opnum örmum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Fleiri fréttir Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Sjá meira