Þernan segir sögu sína opinberlega 26. júlí 2011 05:45 Nafissatou Diallo segir sögu sína í nýjasta tölublaði Newsweek. Mynd/AP
Þernan sem ásakað hefur Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, um nauðgun kom um helgina fram opinberlega og sagði fjölmiðlum sögu sína. Það segist hún gera því hún vilji sjá Strauss-Kahn fara í fangelsi. Ákvörðun þernunnar, sem heitir Nafissatou Diallo, þykir áhættusöm, að sögn lögfræðinga. Viðtölin við tímaritið Newsweek og ABC-sjónvarpsstöðina veita henni tækifæri til að auka trúverðugleika sinn en verði hún uppvís að misfærslum munu verjendur Strauss-Kahn eflaust nýta sér það óspart. Diallo segist ekki hafa vitað hver Strauss-Kahn var fyrir árásina. Hann hafi ráðist að henni eins og „brjálæðingur“ og neytt hana til að veita sér munnmök þrátt fyrir áköf mótmæli. Þá segist hún hafa óttast um líf sitt þegar hún heyrði í sjónvarpinu að Strauss-Kahn væri líklegur til að verða næsti forseti Frakklands. Viðtölin við Diallo koma út nú þegar málið gegn Strauss-Kahn er í lausu lofti í kjölfar þess að efasemdir vöknuðu um trúverðugleika hennar hjá ákæruvaldinu í New York. Hún varð uppvís að rangfærslum um fortíð sína auk þess sem ósamræmis gætti í frásögn af hegðun hennar eftir árásina. Í viðtalinu viðurkenndi Diallo að hafa sagt rangt frá fortíð sinni þegar hún kom til Bandaríkjanna. Lögmenn Strauss-Kahn kölluðu viðtölin óviðeigandi fjölmiðlasirkus sem settur væri á svið til að hafa áhrif á almenningsálitið. - mþl
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Sjá meira