Peter Ridsdale kaupir Plymouth Argyle Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. júlí 2011 09:00 Ridale lengst til hægri þegar hann stjórnaði málum á Elland Road Nordic Photos/AFP
Allt bendir til þess að Peter Ridsdale muni kaupa enska knattspyrnufélagið Plymouth Argyle fyrir eitt breskt pund. Félagið hefur átt í fjárhagslegum erfiðleikum undanfarin misseri og fór í greiðslustöðvun í mars síðastliðnum. Ridsdale er ekki ókunnugur ensku knattspyrnunni. Hann hefur komið víða við ýmist sem framkvæmdarstjóri eða stjórnarformaður félaga í neðri deildum. Meðal félaga sem hann hefur starfað fyrir eru Leeds United, Barnsley og Cardiff City. Þetta verður þó í fyrsta skipti sem hann verður sinn eigin herra. Plymouth hefur gengið allt í óhaginn undanfarin tímabil og fallið um tvær deildir á tveimur árum. Liðið leikur nú í fjórðu efstu deild á Englandi. Borgin Plymouth er sú stærsta á Englandi sem aldrei hefur átt félag í efstu deild enskrar knattspyrnu. Landsliðsmaðurinn Kári Árnason var á mála hjá félaginu undanfarin tvö tímabil en samningi hans við Kára var sagt upp í lok júní. Ástæðan var sú að Kári vildi fá umsamin laun greidd en leikmenn Plymouth hafa leikið launalaust síðan í október síðastliðnum. Af þeim sökum er leikmannahópur félagsins afar fámennur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem félög í fjárhagslegum erfiðleikum eru keypt fyrir eitt pund. Ken nokkur Bates fjárhesti í knattspyrnufélaginu Chelsea fyrir sömu upphæð árið 1982 og tók yfir skuldir félagsins sem stóð fjárhagslega illa.
Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Körfubolti „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Sjá meira