Enski boltinn

Allir búnir að fá nóg af þessu máli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Paddy Kenny, markvörður QPR, lætur hér John Terry, fyrirliða Chelsea, heyra það í leik liðanna í síðasta mánuði. 
Í sama leik á Terry að hafa notað kynþáttaníð um Anton Ferdinand, liðsfélaga Heiðars Helgusonar.
Paddy Kenny, markvörður QPR, lætur hér John Terry, fyrirliða Chelsea, heyra það í leik liðanna í síðasta mánuði. Í sama leik á Terry að hafa notað kynþáttaníð um Anton Ferdinand, liðsfélaga Heiðars Helgusonar. Mynd/Nordic Photos/Getty
Fótbolti Enskir fjölmiðlar hafa fjallað um fátt annað meira á yfirstandandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni en kynþáttafordóma og meint kynþáttaníð leikmanna á milli.

John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, hefur verið í hringiðu umræðunnar eftir að hann var sakaður um að hafa notað niðrandi orð í garð Antons Ferdinand, varnarmanns QPR, í leik liðanna fyrr í haust.

Leik þessara grannliða frá Lundúnum lauk með 1-0 sigri QPR, en Heiðar Helguson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Í gær var mánuður liðinn síðan ásakanirnar í garð Terry komu fram og er enn engin niðurstaða komin, hvorki úr rannsókn enska knattspyrnusambandsins né lögreglunnar í Lundúnum.

Heiðar segir að síðan þá hafi leikmenn QPR rætt þetta mál mikið sín á milli en þeir óski sér helst að það verði leitt til lykta sem allra fyrst.

Óvissan er orðin þreytandi„Þetta hefur verið mjög mikið rætt og ég held að við allir séum komnir með nóg af þessu máli,“ sagði Heiðar við Fréttablaðið um helgina og telur að seinagangurinn í rannsókn málsins hafi gert illt verra.

„Það eru allir komnir með nóg vegna þess að enska knattspyrnusambandið hefur ekki gert neitt í þessu. Sú óvissa um hvort og hvað verði gert í málinu hefur hangið yfir liðinu í langan tíma. Það verður að fara að drífa þetta af.“

Kynþáttaníð hefur verið ansi áberandi í haust, bæði út af þessu máli og deilu Luis Suarez og Patrice Evra. Svo blandaði Sepp Blatter, forseti FIFA, sér í umræðuna á eftirminnilegan máta þegar hann sagði að allar slíkar deilur mætti leysa með handabandi í lok leikja.

„Þetta er nú ekki í fyrsta sinn sem trúðurinn í FIFA kemur fram með skrautleg ummæli og enskir fjölmiðlar hafa velt sér mikið upp úr því. Það er bara óskandi að þetta leysist sem fyrst fyrir alla aðila,“ segir Heiðar, sem skoraði tvö mörk í 3-2 sigri QPR á Stoke um helgina. Hann segir stemninguna mjög góða í herbúðum liðsins.

Stjórinn er klókur„Frammistaða okkar í síðustu leikjum endurspeglar hversu góður liðsandi er innan hópsins. Við erum allir mjög samstilltir,“ segir Heiðar, en QPR er nú í níunda sæti deildarinnar.

„Kannski hélt stjórinn [Neil Warnock] að við þyrftum lengri tíma til að ná saman en hann hefur verið mjög klókur í sínum leikmannakaupum. Hann hefur keypt leikmenn sem hafa reynslu og vita út á hvað enska úrvalsdeildin gengur. Það getur verið erfitt að kaupa erlenda leikmenn sem þurfa svo tíma til að aðlagast boltanum. Við höfum bara ekki tíma til þess.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×