Coyle lofar Joe Riley í hástert - hvað verður um Grétar Rafn? Eiríkur Stefán Ásgeeirsson skrifar 8. nóvember 2011 07:00 Samningur Grétars Rafns við Bolton rennur út í sumar og hann virðist ekki í náðinni eins og er. Nordic Photos / Getty Images
Óvissa ríkir nú um framtíð Grétars Rafns Steinssonar hjá Bolton sem var ekki í leikmannahópi liðsins í 5-0 sigri liðsins á Stoke um helgina. Varnarleikur Bolton hefur ekki verið upp á sitt besta í upphafi tímabilsins en Grétar hefur spilað sex deildarleiki af ellefu á tímabilinu, síðast gegn Swansea í lok október. Nafn Grétars var svo hvergi að finna á leikmannalista Bolton um helgina, þrátt fyrir að flestir aðrir í liðinu sem geta spilað stöðu hægri bakvarðar eigi við meiðsli að stríða. Coyle ákvað frekar að tefla hinum tvítuga Joe Riley fram um helgina en hann hafði aldrei áður spilað í ensku úrvalsdeildinni. Svo fór að Bolton vann stórsigur auk þess að halda hreinu í fyrsta sinn í deildinni síðan 13. ágúst. Riley átti frábæran leik og fékk heiðursskiptingu undir lok leiksins þar sem áhorfendur stóðu á fætur og gáfu honum dynjandi lófatak. „Hann átti ótrúlegan dag," sagði Coyle. „Hann er ungur en ef hann heldur áfram að læra gæti hann átt glæsilegan feril fram undan." Samningur Grétars við Bolton rennur út í sumar en engar fregnir hafa borist af viðræðum um nýjan samning.
Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Sjá meira