Tevez skrópaði aftur á æfingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. nóvember 2011 09:00 Carlos Tevez í leik með Manchester City fyrr á leiktíðinni. Nordic Photos / Getty Images
Carlos Tevez skrópaði aftur á æfingu hjá Manchester City í gær þar sem hann er enn staddur í Argentínu eins og áður hefur komið fram. Tevez fór í leyfisleysi til Argentínu í byrjun síðustu viku en forráðamenn City hafa sagt enskum fjölmiðlum að félagið hafi ætlast til þess að Tevez yrði hjá félaginu á meðan landsleikjafríinu stæði. Fulltrúar Tevez sögðu við BBC í gærkvöldi að hann væri enn í Argentínu en að þeir hefðu ekkert heyrt af neinum yfirvofandi refsiaðgerðum af hálfu félagsins í hans garð. Forsagan ætti að vera öllum kunn. Tevez lýsti því margoft yfir fyrr á þessu ári að hann vildi komast í burtu frá félaginu en án árangurs. Hann neitaði svo að koma inn á sem varamaður í leik með City gegn Bayern München í Meistaradeildinni fyrr í haust og var fyrir það sektaður um tveggja vikna laun. Síðan þá hefur hann ekkert spilað og er ekki útlit fyrir að það muni breytast. Hann fer líklega frá félaginu í janúar næstkomandi en City ætlar þó ekki að sleppa honum ódýrt. „Það er stutt í janúar,“ sagið Gordon Taylor, framkvæmdarstjóri leikmannasamtakanna í Englandi. Hann hefur áhyggjur af Tevez. „En ég vil að þetta mál fái farsæla lausn fyrir þann tíma.“ „Hann þarf að spila. En til þess þarf hann að vera í formi og þá þarf hann að æfa. Hann er knattspyrnumaður, og knattspyrnumenn þurfa að spila.“
Mest lesið Sveindís til félags í eigu stórstjarna Fótbolti Samfélagið á Sauðárkróki ekki í vinnuhæfu ástandi Körfubolti Í beinni: Tindastóll - Stjarnan | Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn ræðst í Síkinu Körfubolti Guardiola hótar að hætta Enski boltinn Gunnar Nelson fann neista frá fyrri tíð: „Smá vakning fyrir mig“ Sport Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Fótbolti Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika Íslenski boltinn Mikilvægasti leikur í sögu Man. Utd Fótbolti „Að vinna Evrópudeildina mun ekki leysa öll okkar vandamál“ Fótbolti Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Enski boltinn Fleiri fréttir Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Sjá meira