Erlent

Gervihnöttur fellur til jarðar í vikunni

Vísindamenn telja að líkurnar á að einhver beri skaða af falli ROSAT séu 1 á móti 2.000.
Vísindamenn telja að líkurnar á að einhver beri skaða af falli ROSAT séu 1 á móti 2.000. mynd/German Aerospace Center
Úreltur gervihnöttur mun falla til jarðar í vikunni. Vísindamenn segja að líkurnar á að gervihnötturinn gæti skaðað einhvern á jörðu niðri séu 1 á móti 2.000.

Gervihnötturinn, sem kallaður er ROSAT og er framleiddur í Þýskalandi, er töluvert stærri en gervihnöttur NASA sem féll til jarðar í síðasta mánuði.

Talið er að ROSAT, sem er röntgensjónauki, muni lenda á jörðinni milli 21-25. október. ROSAT er 2,4 tonn og búast vísindamenn við að stór hluti hans muni brenna upp í lofthjúp jarðar. Samt sem áður eru einingar gervihnattarins sem munu líklegast ekki brenna upp eins og glerdiskur sjónaukans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×