Erlent

Lyfjagjöf til að fresta kynþroska

Pilturinn áður en lyfjagjöfin hófst.
Pilturinn áður en lyfjagjöfin hófst.
Par í Kalíforníu gefur nú 11 ára gömlum syni sínum sérstök hormónalyf til að hægja á kynþroska hans. Pilturinn hefur oft talað um að hann langi að vera stelpa. Parið ákvað að hefja lyfjagjöfina svo að sonur þeirri hafi lengri tíma til að ákveða kyngervi sitt.

Parið og stuðningsmenn þeirra segja að lyfjagjöfin hafi einungis smávægilegar aukaverkanir. Joel Baum, stjórnandi Gender Spectrum í Kalíforníu, segir að framundan séu spennandi tímar fyrir ungt transfólk. Núna geti börn og fjölskyldur þeirra fengið tækifæri til að taka meðvitaðar ákvarðanir.

En gagnrýnendur er á öðru máli. Þeir telja að ellefu ára gömul börn séu ekki nægilegu þroskuð til að taka slíka ákvörðun. Dr. Paul McHugh, prófessor í sálfræði við John Hopkins háskólann, sagði að meðferð parsins á syni sínum jaðraði við barnaníð. Hann sagði röskunina vera andlega, ekki líkamlega og að parið væri að taka vitlaust á málinu.

Lyfjagjöfin mun halda áfram í nokkur ár. Þegar pilturinn nær 14-15 ára aldri mun hún síðan hætta og hann mun þá velja hvort kynið hann kjósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×