Leikskólabörn upplifa streitu 7. júlí 2011 06:00 Ung börn eru oft mjög þreytt í lok leikskóladags. Mynd/Valli
Dvöl á leikskóla allan daginn er of streituvaldandi fyrir ung börn, samkvæmt nýrri rannsókn Norska tækniháskólans. Börn undir tveggja ára aldri á leikskólum mældust með mikið magn af kortisóli, sem er streituhormón. Að sögn prófessorsins May Drugli er mikill hraði, hávaði, stórir hópar og skortur á huggun það sem reynist börnunum erfiðast. Á meðan börn sem hafi náð þriggja ára aldri geti tjáð sig og þarfir sínar þurfi yngri börn að hafa í kringum sig fullorðið fólk sem skilji og sinni þörfum þeirra. Hún vill þó ekki að skuldinni sé skellt á foreldra fyrir að setja börnin á leikskóla, heldur segir hún að leikskólar í Noregi hafi látið yngstu börnin mæta afgangi. Það sé ekki mjög mikilvægt fyrir yngstu börnin að hafa klifurveggi eða annars konar leikföng, heldur skipti mestu máli að hafa fullorðið fólk sem tali við þau. Helmingur foreldra sem rætt var við vegna rannsóknarinnar sagði börnin sín þreytt eftir heilan dag á leikskóla. Tveir þriðju leikskólakennara sögðu börnin oftast vera mjög þreytt í lok dags. - þeb
Mest lesið Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Fleiri fréttir Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Sjá meira