Verstu þurrkar í sextíu ár 7. júlí 2011 10:00 Hópur flóttamanna kominn til flóttamannabúða í Kenía eftir margra daga göngu frá Sómalíu. nordicphotos/AFP
Öflugustu samtök herskárra íslamista í Sómalíu hafa aflétt banni við starfsemi erlendra hjálparstofnana, nú þegar verstu þurrkar til margra áratuga hrjá landsmenn. Bannið var lagt á árið 2009 með þeim rökum að hjálparstofnanirnar væru andsnúnar íslamstrú. Þurrkarnir í Sómalíu og nágrannalöndunum á Horni Afríku, skaganum sem teygir sig út í Indlandshaf, eru þeir verstu sem komið hafa í sextíu ár. Í Sómalíu hafa langvinn borgarastríðsátök gert illt verra og vanburða stjórnvöld ráða ekkert við vandann. Milljónir manna hafa orðið illa úti og streyma nú flóttamenn þúsundum saman frá Sómalíu á hverjum einasta degi, flestir til Kenía sem þó hefur einnig orðið illa úti vegna þurrkanna. Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna segja að helmingur barna í Sómalíu þjáist nú af vannæringu. Óttast er að hungursneyðin, sem nú þegar hrjáir fjölda fólks, verði óviðráðanleg. Alþjóðlegar hjálparstofnanir hafa nú efnt til fjársöfnunar. Fjárþörfin nemur hundruðum milljóna króna. Vonir standa þó til þess að viðbragðskerfi, sem komið hefur verið upp vegna reynslunnar af fyrri hungursneyðum á þessum slóðum, muni virka eins og til er ætlast og voðinn verði því ekki jafn mikill og stundum áður. Fyrir utan Sómalíu er mikil þörf fyrir aðstoð í Eþíópíu og Kenía. Árum saman hefur úrkoma í þessum heimshluta verið óvenju lítil. Þúsundir manna eru á faraldsfæti að leita sér matar og nú þegar hafa hundruð manna dáið úr næringarskorti. Búfénaður er tekinn að falla úr hor. Ofan á allt þetta hefur matvælaverð hækkað upp úr öllu valdi svo jafnvel þegar fólki stendur matvara til boða þá hefur það ekki efni á henni. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Sjá meira