Bylting í geimvísindum 6. október 2011 06:00 Hér sjást tvær vetrarbrautir sem nefnast Loftnetið og eru í 70 milljóna ljósára fjarlægð í stjörnumerkinu Hrafninum. mynd/ALMA (ESO/NAOJ/NRAO)/NASA/ESA Hubble Space Telescope
Flóknasta stjörnustöð á jörðu niðri, ALMA, var tekin formlega í notkun á dögunum. Mörg þúsund vísindamenn frá öllum heimshornum hafa keppst um að vera meðal þeirra fyrstu sem fá tækifæri til að kanna dimmustu, köldustu, fjarlægustu og best földu svæði alheims með sjónaukanum. „Þetta eru merk tímamót í sögu stjarnvísinda," segir Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins sem gerir viðburðinum ítarleg skil. „Með tilkomu þessa óvenjulega risasjónauka er nýtt skeið að hefjast. Nú getum við í fyrsta sinn skyggnst inn í köldustu gas- og rykský í geimnum og skoðað myndun stjarna og sólkerfa í meiri smáatriðum en nokkru sinni fyrr. Segja má að nýr gluggi sé að opnast að alheiminum með ALMA. Leitin að uppruna okkar er hafin fyrir alvöru." Stöðin stendur á hrjóstrugri og afskekktri sléttu í Atacama-eyðimörkinni í Síle, nánar tiltekið á Chajnantor-sléttunni í Andesfjöllum. Fyrstu níu mælingamánuðina getur ALMA aðeins sinnt um það bil hundrað verkefnum. Áhugasamir stjörnufræðingar um allan heim lögðu hins vegar inn óskir um meira en 900 mælingar. Er það nífalt meira en sjónaukinn ræður við og metfjöldi umsókna um tíma í nokkurn sjónauka. Þau verkefni sem komust í gegnum nálaraugað voru valin út frá vísindalegu mikilvægi, fjölbreytni og hvernig þau uppfylla helstu vísindalegu markmið ALMA. ALMA verður enn í smíðum á meðan fyrstu mælingar fara fram. Öll ný loftnet sem bætast við röðina verða tengd saman með ljósleiðara. Gögn frá hverju loftneti eru sett saman í eina stóra mynd með einni öflugustu ofurtölvu heims, sem var sérsmíðuð fyrir ALMA og getur framkvæmt 17.000 milljónir útreikninga á sekúndu. Í kringum árið 2013 verður ALMA allt að sextán kílómetra breið röð 66 hárnákvæmra loftneta sem saman mynda einn risasjónauka.svavar@frettabladid.is
Tengdar fréttir Loftnet vinna saman sem risasjónauki ALMA er alþjóðlegt samstarfsverkefni Evrópu (ESO), Norður-Ameríku, Austur-Asíu og Síle um smíði stærsta stjörnusjónauka heims. Kostnaður við verkefnið nemur meira en einum milljarði dala, um 118 milljörðum íslenskra króna. Sjónaukinn verður tekinn í fulla notkun árið 2013. Í fréttatilkynningu frá ESO (European Southern Observatory, stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli) kemur fram að skammstöfunin ALMA stendur fyrir Atacama Large Millimeter/submillimeter Array. 6. október 2011 03:15 Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira
Loftnet vinna saman sem risasjónauki ALMA er alþjóðlegt samstarfsverkefni Evrópu (ESO), Norður-Ameríku, Austur-Asíu og Síle um smíði stærsta stjörnusjónauka heims. Kostnaður við verkefnið nemur meira en einum milljarði dala, um 118 milljörðum íslenskra króna. Sjónaukinn verður tekinn í fulla notkun árið 2013. Í fréttatilkynningu frá ESO (European Southern Observatory, stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli) kemur fram að skammstöfunin ALMA stendur fyrir Atacama Large Millimeter/submillimeter Array. 6. október 2011 03:15