Ferdinand heyrði ekki hvað Terry sagði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2011 11:46 Nordic Photos / Getty Images
Anton Ferdinand hefur staðfest það sem haldið hefur verið fram í enskum fjölmiðlum alla vikuna - að hann vissi ekki hvað John Terry á að hafa sagt við hann fyrr en eftir að leik Chelsea og QPR lauk um síðustu helgi. Gríðarlega mikið hefur verið fjallað um málið í vikunni en málið er nú til rannsóknar bæði hjá enska knattspyrnusambandinu sem og lögreglunni í Lundúnum. Strax eftir leikinn fóru sjónvarpsupptökur úr leiknum um netið þar sem svo virðist sem að Terry hafi haft niðrandi orð um litarhaft Ferdinand. Það heyrist ekki á upptökunum en það er það sem Terry virðist segja. Terry sjálfur neitar því ekki að hafa notað umrædd orð en ekki í því samhengi sem honum er gefið að sök. Hann segist hafa sagt: „Nei, ég kallaði þig ekki helvítis [...]“. Terry sagði svo sjálfur eftir leikinn að hann hefði rætt þetta ítarlega við Ferdinand og að það hefði ekkert illt verið á milli þeirra. En Ferdinand hefur nú sagt að hann hafði ekki hugmynd um hvað málið snerist þegar þeir ræddu saman strax eftir leikinn. „Ég vissi ekki að kynþáttahatur væri enn við lýði í knattspyrnunni fyrr en um síðustu helgi,“ er haft eftir Ferdinand í enska blaðinu The People í dag. „Ég hafði ekki hugmynd um hvað gerðist fyrr en eftir að ég var farinn frá leikvanginum. Þetta var ótrúlegt, ég trúi bara þessu ekki.“ „Ég þarf ekki að segja neitt meira. Þetta er á YouTube. Það geta allir séð hvað hann sagði. Hvað heldur þú að hann hafi sagt? Jæja, þetta er í höndum enska knattspyrnusambandsins núna.“
Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Fótbolti Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Sjá meira