United aftur á sigurbraut Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2011 00:01 Javier Hernandez fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Javier Hernandez tryggði Manchester United nauman 1-0 sigur á Everton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn er mikilvægur fyrir United-menn sem steinlágu fyrir Manchester City um síðustu helgi. Hernandez skoraði markið snemma í leiknum er hann stýrði fyrirgjöf Patrice Evra frá vinstri í netið af stuttu færi. Tom Cleverly og Danny Welbeck voru báðir í byrjunarliði United í dag og áttu þátt í undirbúningnum. Heimamönnum gekk illa lengst af að skapa sér færi en það lagaðist þó undir lok hálfleiksins. Þeir fengu þá tvívegis aukaspyrnu á hættulegum stað og úr þeirri síðari átti Leighton Baines glæsilegt skot sem hafnaði þó í slánni. Sóknarmenn Everton áttu nokkrar marktilraunir þar að auki en alltaf beint á David De Gea í marki United. Bæði lið áttu sín færi í seinni hálfleik en heimamenn byrjuðu þó betur. United óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn en þó var lítið um færi á báða bóga. Everton var líklega nærri því að jafna metin ef eitthvað var en leikmönnum United tókst að halda forystunni og tryggja sér þrjú dúrmæt stig. Liðið er því komið upp í 23 stig og er tveimur á eftir toppliði Manchester City sem á leik til góða gegn Wolves síðar í dag. Rio Ferdinand kom ekkert við sögu í leiknum en Nani kom inn á sem varamaður í liði United - fyrir Tom Cleverly sem varð að fara af velli í upphafi síðari hálfleiks vegna meiðsla.Staðan í ensku úrvalsdeildinni
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira