Enski boltinn

Rooney nær líklega leiknum gegn Tottenham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Wayne Rooney, leikmaður Manchester United.
Wayne Rooney, leikmaður Manchester United. Nordic Photos / Getty Images

Wayne Rooney mun líklega spila með Manchester United þegar að liðið mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Rooney hefur misst af tveimur síðustu leikjum United en hann meiddist á ökkla í leik liðsins gegn West Brom á nýársdag.

„Hann hefur æft með liðinu í vikunni og ætti að verða klár í slaginn á sunnudaginn," sagði Alex Ferguson, stjóri United, við enska fjölmiðla.

Þá er einnig líklegt að Nemanja Vidic verði einnig leikfær en hann missti af bikarleiknum gegn Liverpool um helgina. Edwin van der Sar markvörður hefur verið með flensu en á einnig möguleika á ná leiknum gegn Tottenham.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×