35 látnir í árás hersins 17. ágúst 2011 04:15 Meðal annars var ráðist á borgina utan af sjó, að sögn mannréttindasamtaka. Þá hafa skriðdrekar verið notaðir í hernaðaraðgerðum. afp photo/ho
35 manns hafa látist af völdum hersins í borginni Latakia í Sýrlandi undanfarna fjóra daga, að sögn íbúa. Af sautján manns sem drepnir voru í landinu á mánudag samkvæmt mannréttindasamtökum voru sex í Latakia. Vélbyssum var beitt og létust flestir í fátækum hverfum borgarinnar, al-Ramel, al-Shaab og Ein Tamra. Í al-Ramel eru stórar flóttamannabúðir Palestínumanna, sem hafa margir hverjir flúið í burtu á síðustu dögum. Að sögn Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn eru allt að tíu þúsund flóttamenn týndir, því ekki er vitað hvar þeir halda sig til. Stjórnin í Sýrlandi hefur hert árásir sínar til muna undanfarið í tilraun til þess að brjóta mótmælin á bak aftur. Stjórnin segist aðeins vera að uppræta hryðjuverkasamtök, sem valdi óróa í landinu. Mörg mannréttindasamtök hafa greint frá því að það eigi ekki við rök að styðjast. Skotið hafi verið á óvopnaða mótmælendur og 1.800 hafi látist síðan mótmælin hófust í mars. Hernaðaraðgerðir eru einnig í fullum gangi í Hama og Deir el-Zour auk Latakia. Jay Carney, talsmaður Hvíta hússins, sagði að Bandaríkjamenn myndu leita leiða til að beita Sýrland frekari viðskiptaþvingunum. Assad Sýrlandsforseti yrði að láta af kerfisbundnu ofbeldi, handtökum og morðum á eigin þjóð. - þeb
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Sjá meira