Lampard mun aldrei ná sér að fullu af meiðslunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2011 19:00 Frank Lampard, leikmaður Chelsea. Mynd/AP
Frank Lampard, leikmaður Chelsea, er aftur farinn að spila með liðinu eftir að hafa misst úr fjóra mánuði vegna meiðsla en segist þó að hann muni aldrei ná sér að fullu. Lampard skoraði tvö mörk í stórsigri Chelsea á Ipswich í bikarnum um síðustu helgi. Lampard, sem er 32 ára gamall, átti aðeins að vera frá í nokkrar vikur vegna meiðslanna en þau reyndust síðan vera miklu alvarlegri þegar á hólminn var komið. Meiðslin voru síðan það slæm að hann mun aldrei vera alveg laus við þau það sem eftir lifir af hans fótboltaferli. Læknar og sjúkraþjálfarar Chelsea þurfa því að fylgjast grannt með nára Lampard alveg eins og þeir þurfa að vakta ökkla Ashley Cole og lærvöðvavandamál John Terry. „Ég þarf bara að vera duglegur að styrkja svæðið. Sinin losnaði af beininu og það er ekki hægt að laga það. Ég hef rætt við leikmenn sem hafa gengið í gegnum svona meiðsli og fékk góð ráð frá þeim," sagði Frank Lampard. „Ég þarf bara að æfa aukalega tvisvar til þrisvar í viku til þess að stykja mig á þessu svæði. Þetta voru slæm meiðsli og ég finn alltaf fyrir þeim af og til," sagði Lampard. „Ég verð betri með hverjum leik og ég er ákveðinn að eiga góðan seinni hluta á tímabilinu ekki síst þar sem ég missti nánast alveg af fyrri hlutanum," sagði Lampard.
Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira