Rúnar Kristins: Þessi fer upp í hillu á skrifstofunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. júlí 2011 13:30
Rúnar Kristinsson þjálfari KR var valinn besti þjálfari umferða 1-11 í Pepsi-deild karla. KR-liðið er ósigrað í deildinni og með gott forskot á toppnum. Rúnar segir lykilinn að árangrinum samheldinn leikmannahóp sem vinnur eftir skýrum markmiðum. „Jú, þetta kemur auðvitað aðeins á óvart. Það eru aðrir þjálfarar að standa sig vel en ánægjulegt að verða fyrir valinu. Rúnar hefur unnið til fjölda verðlauna og hlotið viðurkenningar á löngum ferli. Skyldi verðlaunaskjöldur dagsins fara upp á vegg í stofu? „Þessi fer á skrifstofuna. Upp á hillu þar. Maður reynir að prýða skrifstofuna með einhverju tengdu KR Árangur KR í sumar hefur verið frábær. Liðið hefur aðeins tapað einum leik í allt sumar og það var 2-0 tap í Evrópueinvíginu gegn Zilina, einvígi sem vannst 3-2 samanlagt. „Samheldinn leikmannahópur. Leikmenn sem vilja ná árangri og settu sér skýr markmið fyrir sumarið. Þeir eru að vinna eftir," segir Rúnar um lykilinn að árangri KR í sumar. Rúnar var hluti af þjálfarateymi Loga Ólafssonar síðastliðið sumar. Gengi KR-inga þótti ekki nógu gott svo að Logi var látinn fara og Rúnar tók sjálfur við starfi aðalþjálfara. Undirritaður bað Rúnar um að útskýra hvaða breyting hefði orðið hjá KR eftir að hann tók við. „Það er erfitt. Við Logi og Pétur Pétursson störfuðum saman þegar við komum fyrst að þessu. Sóttum leikmenn og byggðum upp lið. Vorum að vinna eftir ákveðnu spilmunstri sem við viljum búa til. Logi var á góðri leið með það en það kannski heppnaðist ekki alveg. Ég tek svo við og byggi ofan á það. Kem með mínar áherslur. Mesta breytingin er kannski sú að ég stjórna liðinu inni í klefa. Kem með mínar áherslur og reyni að spila fótbolta eins og ég vil spila. Það eru alltaf örlitlar áherslubreytingar. Logi var með eina línu og ég aðra. Þó hún hafi verið svipuð þá eru smá áherslur sem breytast alltaf." Rúnar er hluti af frægum 1969 árgangi sem var mjög sigursæll í yngri flokkum. Flokkurinn var undir mikilli pressu í upphafi 10. áratugarins að landa Íslandsmeistaratitlinum en án árangurs. „Það eru margir úr mínum árgangi sem unnu titilinn síðar en þá var ég fjarri góðu gamni. Ég hef aldrei unnið Íslandsmeistaratitilinn. Ég hef mikinn metnað til að gera það. Allir leikmenn KR vilja vinna titilinn í sumar líkt og stuðningsmennirnir. Það er markmið KR á hverju einasta tímabili þó það lukkist ekki alltaf. Nú erum við með gott lið, það gengur vel en mótið er bara hálfnað. Við eigum mikið verk fyrir höndum og marga erfiða leiki. Við erum ekki búnir að vinna neitt ennþá. Ef við ætlum að fara að trúa því að við séum búnir að vinna eitthvað núna erum við á vitlausri leið. Við þurfum að halda okkur á jörðinni og halda áfram að hlaupa og berjast eins og hingað til. Það hefur skapað okkur þessa stöðu í deildinni," sagði Rúnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Körfubolti Stelpurnar okkar kættu hundruð aðdáenda og Glódís gaf óvænta gjöf Fótbolti Hnífjöfn barátta fyrir lokadag Masters Golf Brynja og Svíinn fögnuðu eftir magnað kvöld í Sjallanum Sport Fór aftur holu í höggi á Masters og fær kristalsskál Golf Ótrúlegt flug undir stjórn Guðjóns og Haukur bjó til helming marka Löwen Handbolti Dagskráin í dag: Gummi Ben með nýja Messu, lokadagur Masters og stórleikur í enska Sport Úrslitaleikur um EM-sæti: „Á ekki von á því að það komi fyrir aftur“ Handbolti Fleiri fréttir Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Besta-spáin 2026: Á ekki að geta klikkað Fantasy-deild í loftið: „Eins og Kylie Jenner bjóði þér á date og þú neitir því“ „Algjörlega nauðsynlegt að fá framherja“ Sjáðu upphitunarþátt Stúkunnar í heild Besta-spáin 2026: Þurfa að svara fyrir sig Gylfi missir af upphafsleiknum Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum og KR fer í Garðabæinn Tók málin í sínar eigin hendur: „Svía fíflið þitt“ „Þetta gefur okkur ekkert forskot“ „Vona að þeir haldi í sín gildi og verði svolítið hugrakkir“ Víkingar bjóða börnum undir sextán ára frítt á Blikaleikinn Besta-spáin 2026: Óþreyja í Garðabænum Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ Sjá meira