Hodgson: Vona að ég fái tíma Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. janúar 2011 10:00 Roy Hodgson, stjóri Liverpool. Nordic Photos / Getty Images
Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segir í samtali við enska fjölmiðla vonast til að hann fái nægan tíma til að láta til sín taka hjá félaginu. Hodgson tók við liðinu í sumar en liðinu hefur þó gengið illa undir stjórn hans í haust. Skipt var um eigendur eftir að tímabilið var hafið og ákváðu þeir að skipta ekki um stjóra. „Ég vona að einn daginn takist mér að móta liðið eftir eigin höfði," sagði Hodgson. „Það gleymist stundum að ég hef ekki verið mjög virkur á leikmannamarkaðnum." „Leikmennirnir sem eru hjá félaginu hafa tekið nýjum stjóra einstaklega vel en þetta eru sömu leikmennirnir og áhorfendur hafa séð síðustu ár." Nokkrum leikjum Liverpool var frestað í desember og því útlit fyrir miklar annir hjá leikmönnum í janúar. Liðið mætir Manchester United í ensku bikarkeppninni um helgina og miðað við úrslitin í þeim leik gæti liðið þurft að spila níu leiki alls í janúarmánuði. Hann segir því að hann gæti þurft að hvíla þá Fernando Torres og Steven Gerrard í einhverjum leikjum. „Ég vona að stuðningsmennirnir skilji það. Fernando Torres er nýbúinn að jafna sig á mjög alvarlegum hnémeiðslum og Steven Gerrard er hætt til að meiðast ef hann spilar of mikið." „Ég verð því að stóla á þá sem virðast geta spilað endalaust - Duracell-kanínurnar. Leikmenn eins og Dirk Kuyt og Lucas Leiva." „Sem betur fer erum við ekki að glíma við of mörg meiðsli eins og er. Það verður vonandi til þess að við náum að koma okkur á réttu brautina."
Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Fleiri fréttir Risa sigur fyrir Leeds United Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Sjá meira