Segir gömlu leiðina ekki lengur færa 24. september 2011 11:30 Mahmoud Abbas í ræðustól á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, stuttu áður en Benjamín Netanjahú steig í sama ræðustól.nordicphotos/AFP
Palestínumenn fögnuðu ákaft þegar Mahmoud Abbas hafði lagt fram umsókn um fulla aðild Palestínuríkis að Sameinuðu þjóðunum. Fjöldi fólks hélt út á götur á Vesturbakkanum til að fagna ræðu forseta Palestínustjórnar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Fögnuður ríkti einnig víða í arabaríkjunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Abbas sagði stund sannleikans vera runna upp, nú þegar hann hefði lagt umsóknina fram: „Þjóð okkar vill heyra svar heimsins.“ Hann rökstuddi mál sitt með því að áratugalangar tilraunir til að semja um frið við Ísrael hafi ávallt siglt í strand. Sú leið hafi reynst ófær og nú verði að láta reyna á vilja Sameinuðu þjóðanna. Abbas hvatti öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna til að samþykkja aðild Palestínu. Hann hvatti einnig þau ríki, sem enn hafa ekki gert það, að viðurkenna sjálfstæði Palestínuríkis. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók hins vegar undir óskir Abbas um frið og sagðist vilja hefja samningaviðræður við Palestínumenn án tafar. „Ég kom ekki hingað til að fá lófatak,“ sagði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann ávarpaði þingið stuttu eftir að Abbas hafði talað. „Ég komhingað til að segja sannleikann, og sannleikurinn er sá að Ísrael vill frið.“ Hann sagði Ísrael fyrst og fremst hafa áhyggjur af öryggi sínu, en Palestínumenn vilji ekki ræða það mál. Ísraelar vilji til dæmis hafa herlið áfram í nýju ríki Palestínu en Abbas taki það ekki í mál. „Palestínumenn vilja fá ríki sitt án friðar,“ sagði Netanjahú. „Þeir eiga fyrst að semja við okkur um frið, þá geta þeir fengið ríkið sitt.“ Abbas sagði hins vegar að friðarviðræður hafi jafnharðan strandað á þeirri stefnu Ísraels að styðja landtökumenn til þess að halda áfram framkvæmdum á herteknu svæðunum. Bandaríkjamenn hafa ítrekað sagst ætla að beita neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar umsókn um aðild Palestínu að samtökunum verður rædd þar. Erindi Palestínumanna verður engu að síður sent áfram til allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, þar sem nægur meirihluti virðist vera fyrir því að veita Palestínu áheyrnaraðild, sem gefur Palestínumönnum mun meira vægi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna en þeir hafa haft. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Fleiri fréttir Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Sjá meira