Kem með mjög sterkar skoðanir inn í þetta lið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2011 08:00 Bjarnólfur Lárusson (til hægri) og Tómas Ingi Tómasson eru teknir við Víkingsliðinu. Mynd/Anton
Bjarnólfur Lárusson var í gær ráðinn eftirmaður Andra Marteinssonar í þjálfarastól Víkinga. Víkingar fengu aðeins 4 stig af 30 mögulegum í síðustu tíu leikjum sínum undir stjórn Andra og sitja í fallsæti þegar mótið er hálfnað. Víkingar fóru ekki langt eftir eftirmanni Andra því Bjarnólfur hefur verið að gera flotta hluti með 2. flokk félagsins. „Þetta gerðist hratt og það er ákveðin herskylda í þessu að stíga upp og taka við liðinu úr því sem komið var. Ég hef ákveðið að tala ekki opinberlega um það sem hefur gerst hjá liðinu. Þetta er bara nýr kafli á tímabilinu sem ætlum að byrja ferskir á í dag. Það eru ellefu leikir fram undan og ég kvíði þessu verkefni ekki neitt,“ segir Bjarnólfur en hann segist þó aldrei hafa stefnt að því að verða þjálfari í efstu deild því honum hafi liðið vel með að þjálfa ungu strákana. „Ég er búinn að vera í Víkingi síðustu tvö ár og hef fylgst vel með á hliðarlínunni. Ég þekki liðið sem hefur verið að spila og hef séð leikina. Ég kem með mjög sterkar skoðanir inn í þetta lið,“ segir Bjarnólfur en fram undan eru leikir við Þór og Stjörnuna en Víkingsliðið náði 4 af 7 stigum sínum í fyrri leikjunum á móti þessum liðum. Bjarnólfur segir að sínar áherslur muni koma fljótt í ljós. „Ég er rosalega ánægður með að fá Tómas Inga með mér í þetta. Við höfum unnið áður saman á knattspyrnuvellinum í Eyjum og þekkjumst vel. Ég treysti honum hundrað prósent og hann verður mér mjög mikilvægur,“ segir Bjarnólfur. Hann og Tómas Ingi voru meðal annars aðalmennirnir í liði ÍBV fyrir tíu árum sem tapaði Íslandsmeistaratitlinum á markatölu. „Það verður auðvelt fyrir okkur að innleiða Eyjabaráttuna í liðið,“ segir Bjarnólfur í léttum tón. Hann ætlar ekki að bæta við leikmannahópinn. „Þeir sem eru í þessum hópi verða að sýna það og sanna að þeir eigi skilið að vera í Víkingsliðinu því annars er glugginn opinn.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Sjá meira