Enski boltinn

Tevez frábær og City komið á toppinn

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Tevez fagnar í dag.
Tevez fagnar í dag. AFP

Manchester City er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Wolves í dag. Fyrirliðinn Carlos Tevez var manna bestur en Edin Dzeko spilaði sinn fyrsta leik fyrir milljarðamæringana eftir söluna frá Wolfsburg fyrir 27 milljónir punda.

En City byrjaði ekki vel. Nenad Milijas skoraði af stuttu færi eftir atgang í teignum og kom Úlfunum óvænt yfir. En Kolo Toure jafnaði skömmu fyrir leikhlé með góðum skalla eftir hornspyrnu.

Carlos Tevez tók svo til sinna ráða í seinni hálfleiknum. Hann skoraði glæsilegt mark strax í upphafi hans og gaf tóninn.

Hann lagði svo upp mark fyrir Yaya Toure eftir glæsilega sókn og skoraði svo fjórða markið sjálfur með flottum skalla. Kevin Doyle minnkaði muninn úr víti. Ronal Zubar minnkaði muninn svo í 4-3 og gaf Úlfunum veika von undir lokin.

En það dugði ekki til og lokatölur 4-3 fyrir City. Dzeko spilaði mjög vel og virðist falla vel að leikstíl liðsins, og ekki síst að leikstíl Tevez.

Chelsea var í miklu basli með Blackburn og virtist fyrirmunað að skora. Branislav Ivanovic braut loksins ísinn í seinni hálfleik með skoti af stuttu færi. Nicolas Anelka tvöfaldaði svo forystu Chelsea með marki eftir hornspyrnu.

WBA vann góðan heimasigur á Blackpool, 3-2. David Vaughan skoraði glæsilegt mark fyrir gestina í upphafi leiksins. Peter Odemwingie skoraði svo gott mark og jafnaði metin fyrir WBA. James Morrisson skoraði svo af stuttu færi í seinni hálfleik en Gary Taylor-Fletcher jafnaði með marki 10 mínútum fyrir leikslok.

Odemwingie skoraði svo aftur og tryggði WBA sigurinn, 3-2.

Stoke átti ekki í teljandi vandræðum með Bolton og vann 2-0. Danny Higginbotham skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu og Matthew Etherington skoraði svo úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Wigan komst yfir gegn Fulham með marki Hugo Rodallega en Andy Johnson jafnaði undir lok leiksins. Niðurstaðan 1-1 jafntefli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×