Enski boltinn

Makoun skrifar undir hjá Villa

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Makoun á HM í leik Kamerún og Hollands.
Makoun á HM í leik Kamerún og Hollands. AFP
Gerard Houllier hefur róið á heimamið og fengið kamerúnska landsliðsmanninn Jean Makoun til liðs við Aston Villa frá Lyon.

Hann stóðst læknisskoðun í gær og skrifaði undir þriggja og hálfs árs langan samning. Kaupverðið eru sex milljónir punda.

"Ég er stoltur yfir því að ganga til liðs við þetta frábæra félag. Villa hefur lengi verið á efitr mér og ég er í skýjunum að þetta sé í höfn," sagði Kamerúninn sem spilar á miðjunni.

Hann bíður enn eftir því að fá leikheimild og spilar því líklega ekki fyrr en undir lok mánaðarins með Villa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×