Flóð á flóð ofan úti um allan heim 15. janúar 2011 07:00 Siglir um bæinn. Meira en fimm hundruð manns hafa látist í Brasilíu vegna flóða og aurskriðna síðustu daga.nordicphotos/AFP
Um 200 manns, sem fórust í flóðunum í Brasilíu á miðvikudag, voru jarðsettir í gær í bænum Teresopolis. Búist er við að tugir manna verði jarðsettir í viðbót í dag, og svo er reiknað með að á morgun verði um 300 manns jarðsungnir í þessum 150 þúsund manna bæ í fjallahéruðunum fyrir ofan Rio de Janeiro. „Við munum finna pláss. Við verðum að gera það,“ segir Vitor da Costa Soares, umsjónarmaður kirkjugarðsins í Teresopolis. „Við verðum hér til klukkan tíu í kvöld, til miðnættis ef við getum. Og svo verðum við mættir aftur klukkan sex í fyrramálið.“ Vitað var um rúmlega 500 manns sem fórust í flóðunum og aurskriðum á þessum slóðum snemma á miðvikudagsmorgun. Fjöldi fólks var sofandi í rúmum sínum þegar skriðurnar komu úr fjöllunum. Í afskekktu hverfi borgarinnar hafa íbúarnir að mestu sjálfir þurft að grafa eftir fólki í aurnum, því engin leið er að komast þangað nema yfir margra kílómetra langt eðjuflæmi. Mikil flóð hafa verið víðar í heiminum síðustu daga. Flóðin miklu í Queensland í Ástralíu eru í rénun og hafa valdið miklu eignatjóni, ekki síst í borginni Brisbane og landbúnaðarhéruðunum þar í kring. Huga að eigum sínum Í Ástralíu er fólk byrjað að hreinsa upp eftir flóðin í vikunni.nordicphotos/AFP Bændur í Ástralíu höfðu vonast eftir góðri uppskeru í ár til að bæta upp það tjón sem varð í þurrkunum miklu á síðasta ári. Flóðin undanfarnar vikur í Ástralíu hafa kostað að minnsta kosti 26 manns lífið, en um 50 manns að auki er saknað. Á Srí Lanka hafa tugir manna farist í flóðum síðustu daga og flóð hafa einnig verið víða í Evrópu nú í vikunni. Í sunnanverðu Þýskalandi hafa flóð valdið miklum skemmdum og lamað samgöngur. Mörg þorp á Srí Lanka eru enn í hálfu kafi eftir flóðin og sums staðar hefur ekki tekist að koma neyðarhjálp til íbúanna. Óttast er að sjúkdómar breiðist út, meðal annars vegna þess að skolpleiðslur yfirfyllast og vatnsbrunnar mengast. Ljóst er að sjúkrahús á Srí Lanka ráða ekki öll við það ef faraldur brýst út. Hópar lækna og hjúkrunarfólks hafa verið sendir út af örkinni til að setja upp sjúkraskýli á flóðasvæðunum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Fleiri fréttir Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Sjá meira