Tottenham og Liverpool berjast um Luis Suárez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2011 13:15 Luis Suárez. Mynd/Nordic Photos/Getty
Úrúgvæinn Luis Suárez er líklega á leiðinni í ensku úrvalsdeildina ef marka má nýjustu fréttir enskra miðla. Guardian segir frá því að Tottenham og Liverpool séu bæði spennt fyrir því að kaupa framherjann frá hollenska liðinu Ajax. Liverpool hefur verið að fylgjast með Suárez síðan í ágúst en hann sló í gegn með landsliði Úrúgvæ á HM í Suður-Afríku síðasta sumar. Suárez er víst mjög áhugasamur fyrir því að fá að spila við hlið Fernando Torres í framlínunni á Anfield. Tottenham hefur einnig verið að kynna sér möguleikana á því að kaupa Luis Suárez en verðmiðinn gæti verið í kringum fimmtán milljónir punda. Suárez er 23 ára og 181 sm framherji sem hefur spilað með Ajax frá árinu 2007. Frank de Boer, þjálfari Ajax, segir að leikmaðurinn vilji komast í sterkari deild og fá betri laun en Ajax er að borga honum 1,75 milljónir punda í árslaun. Suárez var líka ósáttur við forráðamenn Ajax að gera enga athugasemd við það þegar hann var dæmdur í sjö leikja bann í nóvember. Suárez beit þá einn leikmanna PSV Eindhoven. Hann var heldur ekki sáttur við það þegar Martin Jol hætti sem þjálfari Ajax í síðasta mánuði. Luis Suárez er búinn að skora 81 mark í 108 leikjum í hollensku deildinni en hann hefur skorað 7 mörk í 13 leikjum á þessu tímabili eftir að hafa skorað 35 mörk í 33 leikjum á síðustu leiktíð.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira