Grant baðst afsökunar á tapinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2011 15:45 Nordic Photos / Getty Images
Avram Grant, stjóri West Ham, hefur beðið stuðningsmenn félagsins afsökunar á 5-0 tapinu fyrir Newcastle fyrr í vikunni. Hér fyrir ofan má sjá samantekt úr leiknum en West Ham átti skelfilegan dag eins og lesa má úr úrslitum leiksins. West Ham er aftur komið í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar þar sem að Wolves vann óvæntan sigur á Chelsea og Wigan náði 1-1 jafntefli gegn Bolton. Framtíð Grant hjá West Ham er í mikilli óvissu og talið líklegt að hann fái sinn síðasta séns í bikarleiknum gegn Barnsley um helgina. „Ég ætla ekki að afsaka þetta á neinn hátt enda fór allt úrskeðis hjá okkur," sagði Grant í tölvupósti sem hann sendi stuðningsmönnum West Ham. „En það verður að hafa í huga að við höfðum staðið okkur vel í síðustu fjórum leikjum okkar fyrir þennan." „Við erum að sjálfsögðu óánægðir með frammistöðuna og ekki síður úrslit leiksins. En við höfum áður staðið okkur vel og viljum komast aftur á þá braut." „Það er erfitt að útskýra hvað gerðist. Þetta var einfaldlega slæmur dagur í vinnunni. Við erum óánægðir með að vera aftur á botni deildarinnar en það sem mestu máli skiptir er það sem við verðum í lok leiktíðarinnar." „Ég bið þá afsökunar sem lögðu á sig langt ferðalag til að sjá ökkur spila. Við munum koma til baka í vikunni, ég er handviss um það."
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira