Erlent

Gaddafi var grafinn í morgun

Muammar Gaddafi hinn  fallni leiðtogi Líbíu var grafinn í dögun í morgun á leynilegum stað í einni af eyðimörkum landsins.

Aðeins fáeinir klerkar voru viðstaddir greftunina. Einn af sonum Gaddafi, Mutassim, var grafinn með honum. Þetta hefur sjónvarpsstöðin al-Jazeera eftir heimildum.

Lík Gaddafi hafði verið til sýnis í Misrata undanfarna þrjá daga. Annar sonur Gaddafi, Saif al Islam, er sagður á flótta við landamærin við Niger og ætlar að nota falsað vegabréf frá Líbanon til að koma sér úr landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×