Erlent

Mikið magn vopna í Líbíu

Mannréttindavaktin hefur miklar áhyggjur af magni óöruggra vopna í Líbíu.
Mannréttindavaktin hefur miklar áhyggjur af magni óöruggra vopna í Líbíu. mynd/AFP
Mannréttindavaktin hefur lýst yfir áhyggjum vegna mikils magns vopna sem finna má í Líbíu, þar á meðal eru flugskeyti sem auðveldlega geta grandað flugvélum.

Samtökin greindu frá því að tveir staðir við Sirtre hafi að geyma flugskeyti, sprengjuvörpur og önnur vopn sem auðveldlega má breyta í bílasprengjur.

Peter Bouckaert, stjórnarmaður Mannréttindavaktarinnar, sagði að samtökin hefðu margoft beðið yfirvöld í Líbíu og NATO um að koma vopnunum í öruggt skjól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×