Erlent

Apple hönnuðir kynna Hreiðrið

Hreiðrið var hannað til að falla inn í umhverfi sitt.
Hreiðrið var hannað til að falla inn í umhverfi sitt.
Orðrómur um nýtt heimilistæki frá hönnuðum iPod og iPhone reyndust vera sannir því í dag tilkynntu Tony Fadell og Matt Rogers nýja kynslóð hitastilla.

Hitastillirinn er kallaður Hreiðrið og býr yfir mörgum af eiginleikum iPhone snjallsímans - þótt ótrúlegt megi virðast.

Með Hreiðrinu koma sex skynjarar sem komið er fyrir í húsinu. Þeir skiptast á upplýsingum og það tekur Hreiðrið um viku að læra á venjur fjölskyldunnar. Þannig getur Hreiðrið stjórnað hitastigi heimilisins sjálfkrafa.

Skjárinn sýnir rauða tölur þegar hitinn er að aukast og bláa þegar hann fer minnkandi.

Einnig er hægt að tengja Hreiðrið við þráðlaust internet. Þannig geta notendur iPhone stillt hitastigið áður en komið er heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×