Erlent

Mannrán í Sómalíu

Samtökin Danish Demining Goup vinna að aftengingu jarðsprengja og fræðslu um hættu þeirra.
Samtökin Danish Demining Goup vinna að aftengingu jarðsprengja og fræðslu um hættu þeirra. mynd/AFP
Vígamenn frá Sómalíu rændu bandarískum hjálparstarfsmanni og dönskum kollega hennar í dag.

Daninn, sem er sextugur, var ásamt bandarískri konu í norður hluta Sómalíu þegar þeim var rænt. Þau voru á vegum danskra samtaka sem vinna að aftengingu og hreinsun jarðsprengja í þróunarlöndum.

Fyrir stuttu var tveimur læknum rænt í flóttamannabúðum á landamærum Sómalíu og Kenía.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×