Erlent

Skemmd tönn Lennons á uppboði

Endajaxl úr John Lennon fer á uppboð í næsta mánuði. Lágmarksverð fyrir tönnina - sem er með skemmd - eru tæpar tvær milljónir íslenskra króna.

Sumir segja að tönnin gula sé fullkominn safngripur fyrir Bítlaaðdáendur, aðrir segja tönnina vera ógeðslega.

Fyrrverandi húsfreyja Lennons á tönnina. Hann gaf henni jaxlinn eftir að hann var fjarlægður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×