Erlent

Nýtt ríki stofnað í suðurhluta Súdans

Börn í Suður-Súdan búa sig undir dansatriði sem þau ætla að sýna í dag.
Börn í Suður-Súdan búa sig undir dansatriði sem þau ætla að sýna í dag. nordicphotos/AFP
Undanfarna daga hafa íbúar í Suður-Súdan búið sig undir stofnun nýs ríkis í samræmi við niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var í janúar síðastliðnum. Sjálfstæði var formlega lýst yfir í dag.

Leiðtogar margra Afríkuríkja voru viðstaddir hátíðarhöldin ásamt Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Sex ár eru síðan meira en tuttugu ára borgarastríði lauk með friðarsamkomulagi. Partur af því samkomulagi var að íbúar í sunnanverðu landinu, sem aðhyllast ýmis afrísk trúarbrögð og kristni, fengju að kjósa um aðskilnað frá norðurhlutanum, þar sem arabískumælandi íbúar eru í meirihluta og alls ráðandi.

Nánast allir íbúar suðurhlutans samþykktu sjálfstæði í kosningunum í janúar.

„Stjórnin á samt mikið verk óunnið," segir Albino Gaw, einn íbúanna í suðurhlutanum. „Annars verður allt hérna eins og það var áður."

UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, vekur athygli á því að ríflega helmingur íbúa þessa nýja ríkis er á barnsaldri.

„Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þessari „sjálfstæðiskynslóð" að lifa af og blómstra," segir í yfirlýsingu frá UNICEF.

Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi, var sjálf á þessu svæði sem blaðamaður fyrir sex árum, stuttu eftir lok borgarastríðsins sem kostaði tvær milljónir manna lífið.

„Þá bjuggust fáir af þeim sem ég ræddi við við því að friðurinn myndi halda, hvað þá að kosningarnar fengju að fara fram – hvað þá að úrslitin yrðu virt," segir hún. „Nú hefur þetta allt hins vegar gengið í gegn og ég trúi því bara varla."

Veruleg spenna er enn á milli norðurs og suðurs og hefur vaxið eftir að sunnanmenn samþykktu í janúar síðastliðnum að stofna sjálfstætt ríki.

Deilt er um legu landamæranna og auðlindir í jörðu, einkum olíu og gas sunnan landamæranna, sem norðanmenn hafa haft verulegar tekjur af.

Óttast er að átök geti brotist út hvenær sem er, en reynt hefur verið að grípa til ráðstafana til að vinna gegn því. Meðal annars samþykktu fulltrúar beggja um síðustu mánaðamót að herlaust svæði verði meðfram landamærunum til að draga úr spennu.

Þá samþykkti Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í gær að 7.900 manna alþjóðlegt friðargæslulið verði í Suður-Súdan, þar af 7.000 hermenn og 900 lögreglumenn.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×