Erlent

Útgefendur uggandi yfir áætlunum Amazon

Jeff Bezos, forstjóri Amazon, með nýjastu Kindle lestölvuna.
Jeff Bezos, forstjóri Amazon, með nýjastu Kindle lestölvuna. mynd/AFP
Vefverslunin Amazon er einn af brautryðjendum rafbókarinnar og í vetur mun verslunin stíga skrefinu lengra og hefja útgáfu bóka.

Alls mun Amazon gefa út 122 bækur sem verslunin á útgáfurétt á. Talið er að Amazon muni héðan í frá reyna að semja við höfundana sjálfa í stað þess að nálgast útgefendur.

Nokkir útgefendur segja Amazon sneiða fram hjá þeim. Þeir telja störf útgefanda, gagnrýnenda og umboðsmanna rithöfunda vera í hættu.

Dennis Loy Johnsons hjá Melville House útgáfufélaginu sagði útgefendur vera dauðhrædda við Amazon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×