Chicharito: Þarf að leggja mikið á mig til að verða eins og Solskjær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2011 09:00 Javier Hernandez skorar hér sigurmarkið sitt í gær. Mynd/Nordic Photos/Getty
Javier Hernandez, eða Chicharito eins og hann er kallaður, tryggði Manchester United 2-1 sigur á West Brom í gær með sínu áttunda marki á tímabilinu. Hernandez kom þá inn á sem varamaður fyrir Dimitar Berbatov og skoraði sigurmarkið með skalla eftir hornspyrnu Wayne Rooney. Hernandez hefur verið líkt við Norðmanninn Ole Gunnar Solskjaer og svona innkoma eins og í gær ýtir aðeins undir slíkan samanburð. Solskjaer skoraði 28 mörk á sínum ferli hjá United eftir að hafa komið inn á sem varamaður sem er það mesta í sögu félagsins. Hernandez segist sjálfur eiga langt í land til þess að geta verið borinn saman við Ole Gunnar Solskjaer. „Það er gaman að heyra slíkan samanburð og það hvetur mig áfram. Ég þarf að leggja mikið á mig til að verða eins og Solskjær," sagði Hernandez. Það er margt sem minnir menn á Solskjær þegar þeir fylgjast með mexíkanska framherjanum. Hann lítur barnslega út, hann var keyptur nánast óþekktur til United og hann er náttúrulegur markaskorari sem kann að afgreiða boltann í markið.Javier Hernandez fagnar marki sínu í gær.Mynd/Nordic Photos/GettyHernandez hefur ekki fengið mikið að spila í síðustu leikjum eftir að Wayne Rooney snéri til baka eftir meiðslin enda hefur Dimitar Berbatov farið á kostum í síðustu leikjum. Hann sannað þó mikilvægi sitt í gær. „Þetta hafa verið öðruvísi jól en ég er mjög ánægður. Þetta hefur verið bestu jólin mín, ég er með allri fjölskyldunni og er að spila fyrir Manchester United," sagði Hernandez og kvartaði ekki mikið að hafa aðeins fengið að spila í 38 mínútur yfir hátíðirnar.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira