BBC: Martin O'Neill búinn að segja já við Sunderland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2011 09:00 Martin O'Neill og Roy Keane Mynd/Nordic Photos/Getty
Martin O'Neill verður næsti stjóri Sunderland en BBC hefur heimildir fyrir því að hann hafi samþykkt að taka við starfi Steve Bruce. Bruce var rekinn á miðvikudaginn eftir tveggja ára starf á Leikvanginn Ljóssins. Martin O'Neill var síðast stjóri Aston Villa en gekk út í ágúst í fyrra. Hann hefur orðaður við margar lausar stjórastöður síðan þá en O'Neill hefur einnig verið stjóri liða eins og Wycombe, Norwich, Leicester og Celtic. Martin O'Neill hitti Ellis Short, eiganda og stjórnarformann Sunderland, í London í gærkvöldi og þar gengu þeir frá samningi. BBC hefur líka heimildir fyrir því að O'Neill hafi verið til í starfið þrátt fyrir að hann fengi ekki mikinn pening til að kaupa nýja leikmenn í janúar. Martin O'Neill er 59 ára gamall og fyrrum leikmaður Nottingham Forest. Hann vakti fyrst alvöru athygli fyrir starf sitt hjá Leicester City og Celtic en hann fór síðan til Aston Villa árið 2006. Aston Villa varð þrisvar í sjötta sæti undir hans stjórn og komst að auki í úrslitaleik deildarbikarsins áður en O'Neill sagði af sér eftir ósætti við eiganda félagsins. Sunderland mætir Wolves í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn en það er ekki búist við því að O'Neill stýri liðinu í þeim leik. Sunderland er aðeins í 16. sæti deildarinnar og hefur aðeins fengið tvö stig út úr síðustu fjórum leikjum sínum.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ítalía 39-26 | Afar öruggur sigur gegn óvenjulegu liði Handbolti Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Handbolti Sjáðu gleðina hjá Íslendingum í Kristianstad Handbolti Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin Handbolti Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands á EM Handbolti Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Handbolti Stjörnuleikmaður fékk borgaðar tugi milljóna fyrir að spila illa Körfubolti Óli Stef greindi frá fjarveru sonarins yfir lambalæri hjá Þrótturum Handbolti „Á eftir bolta kemur barn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Carrick tekinn við Manchester United Hvað sagði verðandi þjálfari United í einkaviðtali við Sýn Sport? Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Szoboszlai skoraði stórglæsilegt mark en var sakaður um vanvirðingu Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Liverpool áfram í bikarnum og mætir Brighton í næstu umferð Velur Tottenham fram yfir Aston Villa Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Myndi ekki neita ef Carrick byði honum í sitt teymi Búast við því að Carrick verði kynntur hjá United innan tíðar Mátti ekki koma inn á vegna þess að hún var með eyrnalokk Fæstir leikir hjá Man Utd síðan í fyrri heimsstyrjöld Mætir Liverpool en fær gæsahúð þegar hann heyrir „You'll Never Walk Alone“ Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd „Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Mikel Arteta hrósaði Arne Slot Bruno Fernandes hakkaður í gærkvöldi Sjá meira