Ferguson óánægður með Liverpool og ummæli Poyet Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. nóvember 2011 11:30 Alex Ferguson, stjóri Manchester United.
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, vildi lítið segja um kynþáttaníðsdeiluna á milli Luis Suarez og Patrice Evra en sagði þó að Liverpool hafa ekki farið eftir fyrirmælum enska knattspyrnusambandsins í málinu. Hann var einnig ósáttur við ummæli Gus Poyet. Enska knattspyrnusambandið ákvað í vikunni að kæra Suarez, leikmann Liverpool, fyrir að nota niðrandi orðalag um United-manninn Patrice Evra. Suarez hefur ávallt neitað sök en félögin bæði hafa veitt sínum mönnum sinn stuðning. Ferguson sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær en vildi ekki tjá sig efnislega um deiluna. „Enska knattspyrnusambandið hefur beðið okkur um að tjá okkur ekki um málið og við höfum farið eftir þeim fyrirmælum," sagði Ferguson. „Mér finnst að Liverpool hafi verið að leka upplýsingum um málið undanfarnar tvær vikur en það er eitthvað sem að sambandið verður að eiga við." Poyet er knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, sem leikur í ensku B-deildinni, en hann sagði í gær Patrice Evra vera grenjuskjóðu sem hefði ekki átt að kvarta undan Suarez. Poyet og Suarez eru báðir Úrúgvæjar. „Ummæli Gus Poyet komu mér meira á óvart. Ég tel ummælin afar óviðeigandi þegar fólk um allan heim hefur verið að fordæma kynþáttaníð og mér fannst hann velja rangan tíma til að láta þetta frá sér," sagði Ferguson. „Ég skil það vel að hann vilji verja landa sinn en hann verður að setja aðeins meiri hugsun í sínar aðgerðir. Gagnrýni hans á Evra var bjánaleg." Rio Ferdinand, leikmaður United, var duglegur að tjá sig um fræg ummæli Sepp Blatter, forseta FIFA, í vikunni og sagði ummæli Poyet „fornaldarlegt tal".
Mest lesið Sagt að hann spili ekki aftur meðan Craig er með liðið Körfubolti Kylfusveinninn græðir meiri pening en meðalkylfingurinn á PGA Golf Sjúkar kýr sveigja leiðina á Tour de France Sport Frá sólinni í Tampa yfir í Bestu deild kvenna á Íslandi Íslenski boltinn Ekki gild afsökun að hafa drukkið teið hennar mömmu sinnar Sport Chicharito biðst afsökunar á karlrembunni Fótbolti Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski boltinn Sænskur landsliðsmaður vill verða Rússi Sport Gagnrýnd af forsetanum fyrir að vilja sofa hjá strákunum á EM Sport Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Enski boltinn Fleiri fréttir Sádarnir spenntir fyrir Antony Newcastle íhugar að kaupa Sesko Gyökeres á leið í læknisskoðun og fær númerið hans Henry Textor á ekkert í Crystal Palace lengur Miðarnir langdýrastir hjá Fulham Enski kvennaboltinn leyfir áfengi á áhorfendapöllunum Eigendur Man. City græða pening á kaupum Man. United Bað sjálfur um frí og vill fara frá Newcastle Úlfarnir kaupa kólumbíska Pelé Isak fer ekki í æfingaferðina Son eftirsóttur í LA og Tottenham tilbúið að selja en ekki strax Zubimendi fór ekki til Liverpool af því að hann vildi gæðaþjálfara Eiginkona Diogo Jota með vasaklútaskilaboð Liverpool staðfestir Ekitike og fljúga honum strax til Hong Kong Fyrsti bikar í húsi hjá Arsenal Hefur trú á að Rashford láti ljós sitt skína í Katalóníu Palace áfrýjar og vill spila í Evrópudeildinni Sögunni endalausu um Gyökeres loksins að ljúka Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Sjá meira